Búinn að borða grænmeti í viku

Tacó-veisla á föstudagskvöldi.
Tacó-veisla á föstudagskvöldi. Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson

„Líf grænmetisætunnar heldur áfram. Nú erum við búin að borða grænmetismat í vikutíma og það er auðveldara en mörg kjötætan myndi halda. Ein vika er náttúrlega ekki langur tími! Ég þekki nógu margar uppskriftir til að hafa getið klárað fyrstu viku án þess að rembast mikið en mig grunar að það komi fljótlega að leiðarenda. Sjáum hvað setur,“ segir Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson, í sinni nýjustu bloggfærslu.

„Á föstudagskvöldum er gjarnan elduð flatbaka, hamborgarar grillaðir eða að við gerum taco. Nú ákváðum við að gera það síðastnefnda - sem er í miklu uppáhaldi hjá börnunum. Þau eru svo sannarlega með okkur í liði í grænmetisveislunni. Villi ætlar meira að segja að óska eftir grænmetismat í hádeginu í skólanum sínum og ég held að Valdís ætli að gera það líka. Ragga Lára fær auðvitað það sem hún vill.“

Tacoveisla - heimagert guacamole, steiktar nýrnabaunir og heitar kjúklingabaunir og fullt af grænmeti

Byrjum á guacamole-inu.

2 þroskuð avókadó

1/2 laukur

2 hvítlauksrif

1/2 rauður chili

safi úr hálfu lime

1 tómatur

handfylli af kóríander

salt og pipar

Byrjið á því að opna avókadóið og veiða steininn úr. Leggið avókadóið á brettið - skerið í það og snúið því svo í hring. Höggvið svo varlega í steininn með hnífnum og snúið - þannig losnar steinninn auðveldlega frá. 

Setjið tómatinn, hálfan kjarnhreinsaðan chili, hálfan lauk, hvítlauksrifin og svo tvö avókadó í matvinnsluvél. Bætið við safa úr hálfri límónu.

Setjið handfylli af kóríander saman við. 

Maukið rækilega með sprotanum. 

Smakkið til með salti og pipar! 

Namminamm!

Næst er að vinda sér í steiktu baunirnar (Refried beans).

50 g smjör

1 dós svartar nýrnabaunir

1/2 laukur

2 hvítlauksrif

1 tsk kóríander

1 tsk broddkúmen

Setjið eina teskeið af broddkúmeni og kóríander í mortél og lemjið rækilega, þannig að úr verði fínt duft. 

Bræðið smjör á pönnu og steikið laukinn og hvítlaukinn þangað til að hann er mjúkur og ilmar. Bætið þá við nýrnabaununum og steikið í stutta stund. Bætið kryddinu saman við.

Maukið baunirnar með spaða og steikið áfram í nokkrar mínútur. 

Lokahnykkurinn eftir. Spæsí kjúklingabaunir! 

1 dós kjúklingabaunir

1 tsk broddkúmen

1 tsk kóríander

hnífsoddur cheyenne

1 tsk paprikuduft

2 tsk tómatpúre

1 msk jómfrúarolía

basil og kóríander til skreytingar

Hitið jómfrúarolíuna á pönnu og skellið svo kjúklingabaununum út á. Bætið muldum kóríander, broddkúmeni og papríkudufti saman við. Steikið um stund. 

Setjið svo cheyennepipar saman við ásamt tómatpúreinu. Steikið áfram þangað til baunirnar eru eldaðar í gegn.

Berið fram með límónu og skreytið með blöndu af basil og kóríander. 

Svo vorum við líka með heilmikið af fersku grænmeti; papríkur, icebergsalat, rauðlauk, agúrku, tómata og svo maísbaunir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert