Þessi heita súkkulaðisósa gerir allt betra. Kökurnar, ísinn og pönnukökurnar verða meira „djúsí“ þegar þessi sósa er kynnt til leiks. Sósan ætti að slá í gegn hjá öllum sælkerum, sérstaklega þeim sem elska hnetusmjör. Uppskriftin kemur af matablogginu A Dash Of Sanity.
Hráefni:
Aðferð:
Blandaðu öllu hráefninu saman á pönnu, fyrir utan vanilluna. Láttu malla og hrærðu þar til allt hefur bráðnað saman og áferðin er orðin þykk og kekkjalaus. Taktu þá pönnuna af hellunni og bættu vanillunni út í. Láttu sósuna standa og kólna í að minnsta kosti 2-5 mínútur.
Sósan geymist svo í kæli í allt að eina viku.