Svakalegur detox-safi eftir stórar máltíðir

Þessi svakalegi detox-safi lætur þér líða betur eftir stórar máltíðir.
Þessi svakalegi detox-safi lætur þér líða betur eftir stórar máltíðir. www.mindbodygreen.com

Þessi svakalegi detox-safi getur bjargað þér þegar þér líður illa eftir stórar og óhollar máltíðir. Hann er ekkert endilega sá bragðbesti en meinhollur er hann því hann sogar í sig eiturefnin úr líkamanum. Uppskriftin kemur af vef MindBodyGreen.com.

Hráefni

  • 2 litlar rauðrófur
  • fjórir bollar saxað grænkál
  • tveir bollar saxal sellerí
  • ein agúrka
  • hálf límóna
  • 1 lúka steinselja
  • smá kóríander
  • fimm sentímetra bútur engifer
  • 1-2 teskeið chia-fræ

Aðferð

Reyndu að velja lífrænt hráefni. Skolaðu allt hráefnið (fyrir utan chia-fræin)

Settu allt hráefnið (fyrir utan chia-fræin) í gegnum safapressu. Bættu svo chia-fræjunum saman við safann. Láttu standa í um tíu mínútur. 

Njóttu.

Chia-fræ eru meinholl og soga í sig eiturefni úr líkamanum.
Chia-fræ eru meinholl og soga í sig eiturefni úr líkamanum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert