Ekta ítalskt lasagna bechamél sósu

Ekta ítalskt lasagna.
Ekta ítalskt lasagna. www.laeknirinnieldhusinu.com

„Lasagna er ákaflega vinsæll réttur á þessu heimili. Lengi vel var það Snædís kona mín sem sá um að elda þennan rétt. Og það gerði hún sannarlega vel. Eftir að ég gerðist fyrirferðarmeiri í eldhúsinu hef ég séð um að elda lasagnað. Okkur hjónin greinir reyndar svolítið á um hvernig best er að standa að því að gera lasagna. Ég vil alltaf hafa fleiri lög af lasagnaplötum en Snædís og svo erum við ekki alveg sammála um hvernig raða skal sósunum í lasagnað. Við höfum þó náð málamiðlun í þessu eins og svo mörgu,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson í sínum nýjasta pistli áður en hann deilir uppskrift af gómsætu lasagna.

Fyrir kjötsósuna:

  • 600 g nautahakk
  • 1 stór gulur laukur
  • 2 gulrætur
  • 2 sellerístangir
  • 4 hvítlauksrif
  • 3-4 lárviðarlauf
  • 1 tsk ferskt tímían
  • 1 glas rauðvín
  • 2 msk tómatþykkni 
  • 2 dósir niðursoðnir tómatar
  • salt og pipar
  • tómatsósa (ef þarf)

Fyrir Béchamel-sósuna:

  • 1½ l nýmjólk
  • 90 g smjör
  • 90 g hveiti
  • ½ hvítur laukur
  • 3-4 negulnaglar

Annað:

  • 500 g lasagnaplötur
  • 150 g gratínostur/parmaostur

Kjötsósan löguð:

  1. Byrjið á því að gera kjötsósuna. Skerið grænmetið niður smátt (eða hakkið í matvinnsluvél sem flýtir fyrir kjötsósugerðinni) og steikið í jómfrúarolíu. Saltið og piprið. Takið svo grænmetið úr pottinum til að steikja nautahakkið. 
  2. Brúnið nautahakkið í pottinum og gætið þess að ná því vel í sundur. Saltið og piprið.
  3. Bætið grænmetinu við og hrærið vel saman. 
  4. Hellið rauðvíninu yfir og sjóðið upp áfengið. 
  5. Þá er bara að bæta við niðursoðnu tómötunum, tómatþykkninu og kryddjurtunum. 
  6. Sjóðið upp sósuna, smakkið til og bætið við salti, pipar og tómatsósu eftir smekk. 
  7. Látið malla í 20-30 mínútur á meðan þið gerið béchamel-sósuna. 

Béchamel-sósan löguð:

  1. Bræðið smjör í potti og þegar það hættir að freyða hrærið þið hveitinu saman við (hafið hugfast að þykkingarkraftur smjörbollunnar er mestur í byrjun og minnkar því meira sem bollan er elduð).
  2. Hellið mjólkinni varlega út í og hrærið í á meðan. Ekki örvænta – béchamel-sósan er þunn í fyrstu en þegar hún sýður mun hún þykkna. Hrærið í sósunni svo hún brenni ekki við. 
  3. Lækkið hitann þegar suðan er komin upp og látið malla á lágum hita í tíu mínútur til að elda burt allt hveitibragð af sósunni.
  4. Flysjið laukinn og skerið annan helminginn frá. Stingið negulnöglunum í laukinn, leggið í sósuna og látið vera á meðan hveitibragðið er að eldast burt.

Samsetningin:

  1. Smyrjið eldfast mót með hvítlauksolíu.
  2. Setjið fyrst béchamel-sósu í botninn og svo lasagnaplötur.
  3. Raðið til skiptis béchamel-sósu, kjötsósu og lasagnaplötum uns mótið er fullt eða hráefnin uppurin.
  4. Dreifið ostinum ofan á og bakið í 180 gráðu heitum ofni þangað til osturinn er fallega gullinbrúnn. 

Hugmyndir:

Hægt er að nota hvaða hakk sem er í kjötsósuna. Hægt er að skipta béchamel-sósunni út fyrir mozzarellaost og basillauf – frábært! Prófið kotasælu sem maður hrærir saman við nokkur hökkuð ansjósuflök.

Virkilega girnilegt!
Virkilega girnilegt! www.laeknirinnieldhusinu.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert