Brauðstangir án hveiti og glúteins!

Brauðstangir frá Maríu Kristu Hreiðarsdóttur.
Brauðstangir frá Maríu Kristu Hreiðarsdóttur.

Þeir eða þær sem eru með hveiti og glútein-óþol geta svo sannarlega glaðst því María Krista Hreiðarsdóttir kann að búa til glúteinlausar brauðstangir. Það er eitthvað!

„Það er laugardagskvöld, steikin búin að setjast í mallanum og nánast komið að háttatíma. Bíómyndin hálfnuð og þá allt í einu bankar nartþörfin hjá frú Maríu Kristu.

Hvað gera bændur, jú hendast inn í eldhús og snara fram brauðstöngum á mettíma. Örbylgjuofninn kemur sér vel í þessari uppskrift en eflaust er hægt að bræða ost í góðum potti á lágum hita ef fólk er algjörlega mótfallið örbylgjunotkun eða á ekki slíkan grip.

Bakaraofninn er reyndar líka nauðsynlegur í þetta verkefni og eftir 15-20 mín mesta lagi voru 6 ómótstæðilega girnilegar brauðstangir með hvítlaukssmjöri og parmesan lentar á sófaborðinu,“ segir María Krista inni á vef sínum Systurogmakar.is. 

„Ídýfan sem er algjörlega út í loftið var æðisleg með þessu og já kláraðist allt á mjög stuttum tíma. Skammarlega stuttum jafnvel. Hér er uppskriftin ef þið eruð í sömu hugleiðingum og ég,“ segir hún. 

Brauðstangir:

1 egg

1 msk rjómi

2 msk kókoshveiti

140 g rifinn ostur

hvítlauksduft eftir smekk

1-2 msk parmesanduft úr bauk

Aðferð:

Hitið ostinn í öbbanum ( í skál )  í 30 - 60 sek eða þar til hann er fljótandi og ekki farinn að ofhitna.

Blandið öðru innihaldi saman við og hrærið rösklega svo allt blandist saman, gæti tekið nokkur kröftug handtök. Ofninn hitaður í 180°c og því næst skipti ég deiginu í 6 jafna hluta. Snúið upp á deigið og búið til hálfgerða snúninga úr því, þarf ekki að líta 100% út. Endurtakið þar til ca 6 stangir eru komnar á plötu. Dreifið pínu parmesanosti yfir, má t.d. nota úr bauk.

Bakið í ofni í ca 10-12 mín. Þegar stangirnar eru fagurgylltar þá eru þær klárar.

EXTRA GOTT EF ÞIÐ NENNIÐ:

Hvítlaukssmjör

Á meðan stangir eru í ofninum er hægt að bræða 2 msk smjör í  potti eða öbba, blanda 1/2 tsk af hvítlauksmauki saman við og um leið og stangirnar koma úr ofninum er smjörinu penslaði yfir.

Sósan:

Hunts pizzusósa væn sprauta 2-3 msk allavega

1 msk Franks hot chilli sauce ( KOSTUR)

Ath að þetta er einungis minn smekkur, það er líka nóg að nota bara pizzusósuna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert