Dásamlega hollur grænmetisréttur

Flestir hafa gott að því að borða meira grænmeti.
Flestir hafa gott að því að borða meira grænmeti. Ljósmyndari Sara Barðdal

Einka- og heilsumarkþjálfinn Sara Barðdal er með puttann á púlsinum þegar kemur að hollu og næringarríku mataræði.

Á dögunum birti hún uppskrift að heilnæmum og ljúffengum grænmetisrétti, sem margir ættu að kunna að meta.

„Mér finnst mjög gaman að prófa mig áfram í eldhúsinu og nota það hráefni sem ég á til inni í ísskáp, stundum heppnast það rosalega vel og stundum kannski ekki alveg,“ segir Sara í færslu sinni.

„Þetta er kjötlaus réttur (vegan), en ég hef fundið að það hentar mér mjög vel að borða hærra hlutfall af mat frá plönturíkinu frekar en dýraríkinu, m.a. af því að ég upplifi mun meiri orku, vellíðan og á auðveldara með að halda mér í formi. Margar rannsóknir sýna einnig að hærra hlutfall af grænmeti í fæðu og minna af dýraafurðum getur minnkað líkur á sykursýki, hjartasjúkdómum og krabbameini.“

Dásamlegur karrý-kókos-smjörbaunaréttur

-fyrir 2

  • 2 stórar gulrætur
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1/3 blómkálshaus
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1 dós kókosmjólk
  • 1 dós smjörbaunir
  • 2 kúfaðar tsk. af karrí-paste
  • 1 – 2 msk. grænmetiskraftur
  • 1 bolli kínóa
  1. Settu kínóað í pott á móti 2 bollum af vatni. Gott er að vera búin(n) að leggja það í bleyti í nokkrar klukkustundir, eða yfir nótt. Ef þú nærð því ekki, skolaðu það vel. Ég bæti oft túrmerik-kryddi í pottinn líka. Leyfðu suðunni að koma upp, lækkaðu síðan hitann og láttu malla í sirka 15 mín., eða þangað til kínóað er tilbúið.
  2. Byrjaðu síðan á því að steikja hvítlauk og rauðlauk í nokkrar mínútur á pönnu. Settu restina af grænmetinu á pönnuna og hrærðu reglulega þangað til það mýkist.
  3. Bættu við kókosmjólk, grænmetiskrafti og karrí-paste. Hrærðu í smástund og bættu síðan við smjörbaununum. Leyfðu þessu að malla í fimm mínútur, þá ætti allt að vera tilbúið.
  4. Blandaðu kínóanu saman við pottréttinn og settu í skálar (hugsanlega er einhver afgangur, fer eftir skammtastærðum hvers og eins).
  5. Toppaðu síðan með avókadó og kirsuberjatómötum.
Sara Barðdal, einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi, trúir að allir geti fundið …
Sara Barðdal, einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi, trúir að allir geti fundið sér tíma til að hreyfa sig. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert