Uppskriftinni að þessari dásamlegu pítsu með blómkálsbotni deildi Svava Gunnarsdóttir sem heldur úti matarblogginu Ljúfmeti og lekkerheit með lesendum sínum. „Hefðbundna hveitibotninum er skipt úr fyrir blómkálsbotn sem kemur skemmtilega á óvart og er bæði einfalt og gott,“ segir Svava um þessa girnilegu uppskrift.
Blómkálspítsabotn, uppskriftin gefur tvo þunna botna
Hitið ofninn í 200°C. Rífið mozzarella, blómkál og parmesanost og blandið saman við eggin. Saltið og piprið. Fletjið þunnt út á tvær ofnplötur og bakið í 20 mínútur. Takið botnana úr ofninum, setjið á álegg eftir smekk og látið síðan aftur í ofninn í 5 mínútur.