Á föstudaginn opnaði fótboltagolfvöllur í Skemmtigarðinum í Grafarvogi. Greinin hefur sprungið út sem ný afþreying fyrir alla aldurshópa erlendis og verður án efa vel tekið hérlendis. Knattspyrnukapparnir og landsliðsmennirnir Eiður Smári Guðjonsen og Alfreð Finnbogason ásamt Karenu Ómarsdóttur knattpspyrnukonu mættu golfurunum Birgi Leif Hafþórssyni, Ólafi Loftsyni og Emil Þór Ragnarssyni í léttum leik. Eins og sést á myndunum var gleðin við völd.