Páll Óskar Hjálmtýsson er að æfa sig fyrir Rocky Horror og til þess að tónlistin fari inn í líkamann er hann byrjaður að sippa. Hann segir það mjög árangursríkt að sippa og syngja á sama tíma. Fljótlega mun hann fara að æfa sig í að sippa á háhæluðum skóm.
Páll Óskar sagði í viðtali við Svala og Svavar að hann væri að æfa sig því hann hafi ekki farið í háa hæla í 22 ár.