„Þú kastar eins og kelling“

Bjarki Már Ólafsson
Bjarki Már Ólafsson Mynd: Sigríður Sigurlína Pálsdóttir

Bjarki Már Ólafsson knattspyrnuþjálfari hjá Gróttu gagnrýnir viðhorf til kvennabolta og segir að gríðarlegra úrbóta sé þörf eigi stelpur að fá sömu tækifæri og strákar í fótboltanum.

„Stelpur? Nei, það er alltof mikill pakki... Þær eru ekkert í þessu af neinni alvöru... Það koma alltof margir drama árekstrar upp o.s.frv. - Þetta eru pælingar sem ég tel að skjótist upp í hugann á alltof mörgum þegar þeir hugsa um stelpur í boltaíþróttum,“ skrifar Bjarki Már á bloggsíðu sína en þar varpar hann fram spurningum um staðalímyndir stúlkna í boltaíþróttum og lýsir því hvernig hans eigið viðhorf gerbreyttist eftir að hann tók að sér að þjálfa stelpur í fimmta og sjötta flokki.

„Í strákaíþróttum eru frasar eins og þú kastar/sparkar eins og stelpa! og ekki vera kelling! rótgrónir sem orsaka það að stelpum er ekki tekið alvarlega í boltaíþróttum,“ skrifar Bjarki en eftir miklar vangaveltur ákvað hann  að taka að sér þjálfun bæði fimmta og sjötta flokks kvenna.

Hann lýsir því líka hvernig hann lofaði sjálfum sér að setja nákvæmlega sömu kröfur á stelpurnar og hann myndi setja á stráka á sama aldri en Bjarki þjálfar jafnframt karla í sjöunda og öðrum flokki.

„Ég hafði svo innilega rangt fyrir mér“

„Þetta er ein allra besta ákvörðun sem ég hef tekið, þá helst vegna þess að ég hafði svo innilega rangt fyrir mér,“ skrifar Bjarki en eftir að hafa þjálfað bæði stelpur og stráka í áðurnefndum flokkum upplifði hann að hans eigin viðhorf væru skrítin og að það sama ætti við um marga aðra. Í kjölfarið leitaði Bjarki svara við því hvað orsakar þessi neikvæðu viðhorf.

„Ég hef komist að því að þessar skoðanir og vangaveltur sem að ég hafði áður en ég tók við starfinu voru svo kolrangar og taktlausar. Af minni reynslu þá fullyrði ég það að það á að setja sömu kröfur á stelpur og stráka í yngri flokkum í þjálfun, og það á að taka kvennaíþróttum jafn alvarlega og karlaíþróttum,“ skrifar Bjarki.  

„Það á að setja sömu kröfur á stelpur og stráka,
„Það á að setja sömu kröfur á stelpur og stráka," segir Bjarki. bjamola.blogspot.com/


Bara uppáhalds karlar

„Fjölmiðlaumhverfið og umræðan veldur því að markaðsetning á strákafótbolta er margfalt öflugri heldur en kvenna megin. Ég framkvæmdi könnun í báðum kvennaflokkunum þar sem að ég spurði hverja einustu stelpu hver hennar uppáhalds fótboltamaður/fótboltakona væri. Allar svöruðu með karlkyns fótboltamanni.“

„Utan æfingatíma horfa strákar á hetjurnar sínar spila fótbolta, fara í FIFA og spila með hetjurnar í tölvunni og fara svo út í fótbolta og leika þessar sömu hetjur. Stelpurnar geta varla horft á stelpur spila fótbolta í sjónvarpi og því er skortur á kvenkyns fyrirmyndum og hetjum. Þær geta ekki stýrt þeim í tölvunni, þar sem að það er ekki til kvenkyns fótbolta leikur, og því fara þær ekki út á völl að leika hetjurnar sínar þar sem að þær eiga engar kvenkyns hetjur,“ skrifar Bjarki. 

„Stelpur eiga að ganga að sama borði og strákar“

„Tölvuleikir þar sem þú getur stýrt þessum stórstjörnum verður til þess að þú byrjar að idolisera hetjurnar á tölvuskjánum. Það er mjög langsótt að EA Sports muni bjóða upp á kvennabolta í FIFA leikjunum og því er varla hægt að sjá fram á breytingar í þessum efnum. Hins vegar þarf fjölmiðlaumfjöllun og umræðan að taka breytingum. KSÍ fær hins vegar hrós fyrir bætta markaðsetningu á kvennafótbolta undanfarin ár.“

„Það þarf að breyta þessum staðalímyndum um boltaíþróttirnar og útrýma áður nefndum frösum. Þjálfarar, foreldrar og þeir sem koma að íþróttahreyfingunni þurfa að taka höndum saman í því að sjá til þess að það verði viðhorfsbreyting á þessu.“

„Stelpur eiga að fá sömu tækifæri og strákar. Fótboltinn getur boðið upp á svo margt. Launuð atvinnumennska, niðurgreitt háskólanám úti í heimi, félagskapur og minningar til margra ára eru dæmi um tækifærin sem fótboltinn býður upp á og stelpur eiga að ganga að sama borði og strákar í þessum efnum,” skrifar Bjarki og bendir að lokum á #likeagirl herferðina þar sem fólk var beðið um að gera ýmsa hluti eins og stelpa.

„Flestir brugðist við með því að gera hlutina á fíflalegan hátt og það er einmitt viðhorfið sem er alltof áberandi í boltaíþróttum. Boðskapurinn er sá að ef þú ert að gera hlutina eins og stelpa, haltu því áfram.”

Lesa má pistilinn hér á bloggsíðu Bjarka

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál