„Kæra eiginkona. Ég þekki þig ekki neitt en ég veit að það er góður möguleiki á að eiginmaður þinn muni halda framhjá þér með vændiskonu. Ég segi þetta vegna þess að ég er vændiskona, og það er ekki lítið að gera hjá mér.“ Þetta skrifar vændiskona sem kýs að kalla sig April Adams í bréfi sem birtist á heimasíðu Vice.
„En ekki þinn eiginmaður segir þú, ekki hann. Aðrir eiginmenn, að sjálfsögðu, en þitt samband, þitt kynlíf, það er öðruvísi,“ skrifar Adams sem hæðist að þeim konum sem trúa ekki að eiginmenn þeirra gætu haldið framhjá þeim.
„Leyfðu mér að spyrja þig að einu: Hvað er langt síðan þið stunduðuð kynlíf þrisvar í viku? Hvað er langt síðan hann kvartaði yfir því? Gæti ekki verið að hann hefði farið með vandamálið annað, það er að segja til mín?“
„Góðu fréttirnar eru þær að ef eiginmaðurinn þinn kemur til mín er það vegna þess að hann vill vera giftur þér áfram. Hann þarf bara að fá útrás og reynir að gera það á eins snyrtilegan máta og mögulegt er. Ímyndaðu þér ef ég væri barnapían þín, nágranni þinn, besta vinkona þín. Þú skilur hvað ég á við.“
„Ég er fagmaður. Ég get haldið leyndarmáli. Og það sem meira er, ég elska ekki eiginmann þinn og mun aldrei gera,“ útskýrir Adams og bendir á björtu hliðar þess að sumir eiginmenn kjósa að halda framhjá konum sínum með vændiskonum.
„Ég mun aldrei ógna hjónabandi þínu vegna þess að þegar ég er ekki í vinnunni vil ég ekkert með ykkur hafa. Ég mun aldrei fara út að borða með honum né hringja í hann um miðja nótt og stinga upp á skilnaði,“ skrifar Adams meðal annars í pistil sinn.
„Ég er leynilega hráefnið í mörgum farsælum hjónaböndum vegna þess að þegar hann kemur til mín þá eruð þið bæði að stunda eins mikið kynlíf og þið viljið,“ útskýrir Adams sem er viss um að eiginkonan sem les pistil hennar vilji ekki jafn mikið kynlíf og eiginmaðurinn. „Svo lengi sem þú lætur farsímann hans í friði þá gætuð þið kannski náð 50 ára brúðkaupsafmæli. Verði þér að góðu.“