Anton Kraft er einn sterkasti maður heims miðað við stærð en Kraft er 130 sentímetrar á hæð og vegur rúm 50 kíló, metið hans í bekkpressu er 228 kíló. Kraft er 52 ára og vandlátur, hann vill bara vera með konum sem eru minnst 30 sentímetrum hærri en hann sjálfur. Í dag á hann í ástarsambandi við transkonuna China Bell, hún er 190 sentímetrar á hæð.
Þau Kraft og Bell hafa verið saman í um hálft ár. Bell kveðst hafa verið hikandi fyrst þegar Kraft bauð henni á stefnumót en fljótlega heillaðist hún af styrk hans og hæfileikum.
„Mér finnst kynþokkafullt að sjá Anton lyfta. Ég hef aldrei verið með manni sem er 1,30 á hæð og ég var forvitin. Ég er fegin að ég gaf honum tækifæri vegna þess að hann er frábær manneskja. Ég er öðruvísi og hann er öðruvísi og það er jákvætt,“ sagði Bell í viðtali við Daily Mail.
Kraft hefur stundað kraftlyftingar af kappi í tíu ár og á met í bekkpressu í sínum þyngdarflokki. Læknar hafa nú varað Kraft við því að stunda ákafar lyftingar því þeir óttast að hjarta hans höndli ekki álagið. En Kraft lætur ráðleggingar lækna sem vind um eyru þjóta enda hefur hann ekki alltaf farið vel með sig í gegnum tíðina. Kraft segist til að mynda hafa dáið fimm sinnum og verið lífgaður við, meðal annars þegar hann datt út um glugga og þegar hann drukknaði.
Það er bara einn sigurvegari
„Ég trúi því að það sé bara einn sigurvegari, sá sem er í öðru sæti tapar. Þegar á heildina litið er ég einn af fimm sterkustu mönnum heims, óháð hæð og þyngd. Ég er eini maðurinn í heiminum sem hefur tekið fjórum sinnum sína eigin líkamsþyngd í bekkpressu.“
Kraft segist njóta þess í botn að vera í sambandi með transkonu. „Ég nýt þess vegna þess að hún fæddist sem karlmaður og gerir nú allt til að verða eins kvenleg og mögulegt er. Flestar konur sem fæðast sem konur verja ekki eins miklum tíma í að huga að útlitinu eins og hún. Mér líður eins og ég sé heppnasti maður í heimi.“