Að veita konu himnesk munnmök

Kynlífsfræðingurinn Adinu Rivers kennir fylgjendum sínum á YouTube að gefa …
Kynlífsfræðingurinn Adinu Rivers kennir fylgjendum sínum á YouTube að gefa himnesk munnmök. youtube.com

Í seinustu viku birtust leiðbeiningar frá kynlífsfræðingnum Adinu Rivers um hvernig á að veita karlmanni guðdómleg munnmök. En nú er komið að konunum. Hérna koma átta áhugaverð atriði frá Rivers um hvernig á að sleikja píku.

1 Láttu henni líða vel með sjálfa sig. Rivers segir margar konur vera óöruggar með líkama sinn á einn eða annan hátt. „Segðu henni að hún sé falleg og virtu hana fyrir þér. Það er ekki fyrr en konan er örugg sem hún getur opnað sig, líkamlega og andlega.“

2 Vertu til staðar. „Ekki tapa þér í eigin greddu. Slakaðu og andaðu,“ segir Rivers sem mælir líka með að tala og lýsa því sem er að gerast.

3 Stríddu henni og nálgastu píkuna rólega. „Núna ætla ég að uppljóstra einu stærsta leyndarmáli í heimi. Konur þurfa að taka því rólega,“ útskýrir Rivers. Hún segir konur þurfa mun lengri tíma en karlmenn til að komast í stuð, eða í kringum 20-30 mínútur. „Taktu þér þann tíma sem þú heldur að hún þurfi og tvöfaldaðu hann.“

4 Sleiktu og kysstu. „Það er góð hugmynd að koma púða fyrir undir rassinn. Þetta lyftir henni upp og þú færð betra aðgengi. Svo er kominn tími til að gerast listamaður með tungunni. Láttu hana finna fyrir heitum andardrættinum og taktu þér svo pásu, þetta mun gera hana svo æsta.“

5 G-bletturinn. „Þessi töfrablettur er staðsettur í þaki píkunnar. Þegar konan er æst getur þú fundið fyrir þessum svampkennda bletti sem er öðruvísi viðkomu heldur en allt annað þarna inni. Hlustaðu á andardráttinn og fylgdu honum,“ segir Rivers sem mælir með að nota tvo fingur til að strjúka g-blettinn.

6 „Múltítaskaðu“. „Núna er komið að því að „múltítaska“. Einbeittu þér að snípnum og g-blettinum.“

7 Ekki hætta. Rivers segir mikilvægt að hætta ekki þegar konan byrjar að fá fullnægingu. „Haltu áfram að einbeita þér að snípnum eftir að hún er búin að fá það. Sumar konur ná þá að upplifa raðfullnægingu.“

8 Eftir fullnæginguna. Kona þarf ekki bara langan tíma til að hitna heldur líka til að kólna aftur að sögn Rivers. „Eftir fullnæginguna vilja sumar konur liggja alveg hreyfingarlausar og soga upp orkuna en aðrar vilja kúra. Sjáðu hvað hún vill gera, hún mun að öllum líkindum láta það í ljós sjálf,“ segir Rivers sem minnir á að æfingin skapar meistarann.

Adina Rivers veit allt um munnmök.
Adina Rivers veit allt um munnmök. youtube.com
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál