Ef það eina sem þú hugsar um eftir átta tíma vinnudag, heimilisskyldur og annað daglegt vesen er svefn er það bara ekkert skrýtið. Líkami þinn krefst alls ekki daglegs kynlífs en það eru nokkrir hlutir sem þú getur gert til að ýta undir „kynlífsvilja“ þinn.
Eftirfarandi listi er fenginn frá Women's Health:
1. Notaðu sturtuhausinn með frumlegum hætti.
Ef þú átt örfáar aukamínútur í morgunsturtunni skaltu nota þær til að leika við sjálfa þig. Því fleiri fullnægingar sem þú færð þeim mun meira langar þig í kynlíf.
2. SMS-forleikur.
Byggðu upp kynferðislega spennu með því að senda makanum sms-skilaboð þar sem þú lýsir fantasíum þínum.
3. Þjálfaðu líkamann.
Þannig eykur þú endorfínframleiðslu og þrek almennt. Ef þið mætið bæði sveitt heim er ekki annað að gera en að fara saman í bað.
4. Farðu í kynþokkafull föt.
Það kveikir í öllum.
5. Vertu til staðar.
Gleymdu deginum, slökktu á öllum skjám og hlutum sem valda áreiti. Kveiktu á rómantískri tónlist og vertu 100% til staðar fyrir makann.
Ef þið blandið þessu öllu saman eru heilmiklar líkur á skotheldu kvöldi þar sem hjón geta notið samverustunda mitt í öllu stressi hversdagsins. Það er gaman.