Ótrúlegustu hlutir geta kveikt í fólki ef marka má færslu sem birtist á vefnum Whisper en á þeim vef getur fólk deilt upplýsingum nafnlaust með öðrum notendum síðunnar.
Í færslunni er samantekt af skrýtnum hlutum sem koma fólki í stuð.
„Ég æsist öll upp þegar kærastinn minn skefur snjóinn af rúðunum á bílnum mínum.“
„Sveitt yfirvaraskegg.“
„Sviti í handakrika.“
„Þekking kærasta míns á fyrri heimsstyrjöldinni.“
„Konur með óvenjuleg líkamshlutföll, eins og mjög breiðar mjaðmir og þykk læri en mjótt mitti.“
„Þykkir fingur.“
„Menn með beittar tennur.“
„Hjólbeinótt fólk.“
„Ör.“
„Af einhverjum ástæðum kveikja konur með perlueyrnalokka í mér hratt og örugglega.“
„Ég elska appelsínuhúð.“
„Konur með undirbit.“
„Bólur á sumum mönnum.“
„Mér þykir fólk með latt auga mjög aðlaðandi.“
„Þegar menn sleikja diskinn sinn þegar þeir eru búnir að borða.“