Hamingjusöm pör sem kynntust á Tinder

Það er greinilega hægt að finna sanna ást á Tinder.
Það er greinilega hægt að finna sanna ást á Tinder. tinder.com

Á heimasíðu stefnumótaforritsins Tinder má lesa nokkrar sögur af hamingjusömum pörum sem kynntust með hjálp forritsins. Sögurnar, sem eru skrifaðar af pörunum sjálfum, lýsa því hvernig samböndin þróuðust út frá einu örlagaríku „match-i“.

Flest pörin eru í dag trúlofuð eða gift. „Svo þakklát að ég fann hann á Tinder," skrifaði ein hamingjusöm. „Ég þakka Tinder fyrir að ég fæ að verja hverjum degi með kærustunni minni og bestu vinkonu," skrifar önnur.

„Jason var reyndar annað Tinder-stefnumótið mitt. Við skemmtum okkur konunglega, borðuðum saman í þrjár klukkustundir og fórum svo á næsta pöbb. Svo vatt þetta bara upp á sig. Ég man eftir að hafa sagt honum að ég væri að hugsa um að „eyða Tinder“ nokkrum vikum eftir að við hittumst fyrst. Ég held að það sé nútímaleiðin til að segja: „byrjum saman.“

„Tíu mánuðum síðar vorum við flutt inn saman. Svo fórum við í helgaferð til New York í maí á seinasta ári. Við röltum í gegnum Central Park og Jason fór að tala um Tinder. Við veltum fyrir okkur hvort að hvort við gætum fundið prófílinn hjá hvort öðru og hvort gömlu skilaboðin okkar væru enn á sínum stað. Við sóttum Tinder og fundum hvort annað. Hann sendi mér skilaboð, alveg eins og hann gerði eitt sinn. Nema þetta var lengra.  Hann rifjaði upp gamla tíma og sagði að ef við værum ekki nú þegar saman þá myndi hann bjóða mér á stefnumót. „Þá er bara ein spurning sem ég á eftir að spyrja þig,“ skrifaði hann til mín. Ég leit upp frá símanum og þarna var hann kominn niður á hné. Hann bað mig um að verja það sem eftir er ævinnar með mér,“ skrifar Rachael í sína Tinder-sögu.

Hérna geta áhugsamir lesið ástarsögur og sent inn sína eigin.

Tinder er með vinsælustu snjallsímaforritum í heimi.
Tinder er með vinsælustu snjallsímaforritum í heimi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál