Eru þetta verstu stefnumót í heimi?

Margar konur þurfa að kyssa nokkra froska áður en þær …
Margar konur þurfa að kyssa nokkra froska áður en þær finna draumaprinsinn. mbl

Flestir eiga sögur af einu, eða tveimur, hræðilegum stefnumótum í handraðanum. Enda þurfa konur jafnan að kyssa nokkra froska áður en þær finna draumaprinsinn.

Á vef SELF er að finna frásagnir kvenna af sérlega leiðinlegum, vandræðalegum og almennt glötuðum stefnumótum. Eftir lesturinn þarf okkur hinum ekki að líða alveg jafn illa með eigin mislukkuðu stefnumót.

Stefnumótið sem endaði með fótbroti
„Ég skemmti mér konunglega á pönk tónleikum með manni sem ég hitti á Tinder. Við vorum að færa okkur frá því að drekka gin og tóník og yfir í bjór þegar hann kom allt í einu með skot. Ég hugsaði með mér, hví ekki? Eftir tónleikana fórum við síðan heim til hans, gerðum það, og steinsofnuðum. Klukkan 3’30 um nóttina vaknaði ég með ákafan sársauka í ökklanum, sem ég gat ekki staðið í. Ég haltraði fram í eldhús, sótti frosið spínat og fór aftur í rúmið. Ég lagði spínatið við ökklann og sofnaði samstundis. Næsta morgun var spínat út um allt. Í lakinu, á gólfinu og jafnvel í rúmgaflinum hans sem var úr basti. Hann horfði á mig og það eina sem hann sagði var, hvað í andskotanum? Ég forðaði mér eins fljótt og ég gat, og fékk enga hjálp þegar ég haltraði niður stigann. Á slysadeildinni fékk ég síðan staðfest að ég væri fótbrotin. Ég heyrði aldrei aftur í gæjanum.“

Stefnumótið með sýruhausnum
„Bróðir vinar míns kom heim til mín í kvöldverð. Stefnumótið var hræðilegt. Fyrir það fyrsta var vond lykt af honum, að ég held vegna þess að fötin hans voru grútskítug. Þegar við settumst síðan í sófann eftir mat prumpaði hann viðstöðulaust, hljóðlaust en þó afar illa þefjandi. Í miðjum samræðum fékk hann símtal þar sem honum var sagt að dópsalinn hans hafi verið handtekinn. Hann var undir svo miklum áhrifum að hann bað mig að skutla sér út í matvöruverslun, þar sem hann ætlað að hitta manninn sem hafði hringt í hann. Ég gerði það, en hann kom aldrei út úr versluninni. Hann yfirgaf mig við stórmarkaðinn. Ég samþykkti að fara á annað stefnumót með honum, vegna þess að ég var að gera bróður hans greiða. Á öðru stefnumóti okkar, þar sem við vorum að borða bröns, viðurkenndi hann að hann væri nýbúinn að droppa sýru. Hvað í fjandanum!“

Fleiri sögur má lesa hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál