„Kæra E. Jean, ég er ástfanginn af þremur konum. Í fyrsta lagi er það fyrrverandi konan mín. Við lifðum frábæru kynlífi og skemmtum okkur konunglega, en rifumst líka út af öllu og engu. Hún er í sambúð með öðrum manni, en viðurkenndi nýlega fyrir mér að hún væri ekki hamingjusöm og vildi reyna aftur með mér. Hún er einnig fallegasta kona sem ég hef verið með,“ segir í bréfi ringlaðs manns, sem hafði samband við sérlegan ráðgjafa tímaritsins ELLE.
„Núverandi kærastan mín getur verið alger frekja, en kynlífið er ótrúlegt og ég hef á tilfinningunni að það muni batna. Þrátt fyrir að hún sé ekki jafnmenntuð og ég finnst mér gaman að vera með henni.“
„Síðan er það fyrrverandi kærastan mín, en samband okkar var það ofsafengnasta sem ég hef átt í. Hún er ótrúlega vel gefin, menntuð og frábær. Kynlífið var þó ekkert æðislegt og hún er sæt en ekki falleg. Hún vill endilega að við tökum aftur upp þráðinn.“
„Ég hef verið að einbeita mér að núverandi kærustunni minni og hef verið ástúðlegur og trúr, en ég sakna fyrrverandi konunnar minnar. Við erum svo lík að mörgu leyti og eigum tvo frábæra krakka. En til að vanda málin get ég ekki hætt að hugsa um fyrrverandi kærustuna mína. Ég er svo ringlaður.“
Ráðgjafinn á að sjálfsögðu ráð undir rifi hverju, og svaraði því um hæl.
„Menn sjá eftir ýmsu á dánarbeðinum, og þar á meðal því að hafa ekki verið með jafnmörgum konum og þeim var unnt og að þeir hafi ekki lifað lífinu lifandi. Þú ert aldeilis að gera það. Og ættu verðlaunin að vera „frekjan“, eða fyrrverandi kærastan og miðlungsgóða kynlífið? Nei, veldu þá frekar fyrrverandi eiginkonuna og barnsmóður þína. Ég meina, besta kynlíf sem þú hefur upplifað, frábær skemmtun og fallegasta kona sem þú hefur verið með.“