Kæra E. Jean, kærastinn minn er skotinn í Scarlett Johansson. Ég veit að allir laðast að frægum einstaklingum, en ég líkist henni ekki neitt. Ég er dökkhærð, er vaxin eins og strákur og er með fremur lítil brjóst,“ segir í bréfi ungrar konu, sem leitaði til ráðgjafa tímaritsins Elle.
„Þegar við byrjuðum að hittast var mikið fjör í sambandinu, en núna ári síðar segir hann að það sé mikið að gera í vinnunni og vill ekki stunda kynlíf. Við stunduðum kynlíf á hverjum degi, en núna gerum við það ekki nema aðra hverja viku eða svo. Ég veit að þetta eru of miklar upplýsingar, en það er eins og hann vilji bara fá það og ekkert meira. Er hann skyndilega ekki hrifinn af mér lengur? Er ég ekki hans týpa?“
Ráðgjafinn svaraði skýrt og skorinort og sagði: „Auðvitað er hann skotinn í Scarlett Johansson. Ef Scarlett Johansson og allir þingmenn bandaríska þingsins væru læst inni í brennandi byggingu myndu allir bjarga Scarlett fyrst. Spurðu sjálfa þig, hvað myndi Scarlett gera við gæja sem myndi neita að sofa hjá henni?“
„Fyrstu viðbrögð þín eru rétta svarið.“