Það er mikilvægt að endurmeta viðhorf sín til ýmissa mála, til dæmis getur maður geymt innra með sér erfið viðhorf gagnvart skilnaði. Algengt er að fólk hafi hugsað með sér að „aldrei skuli börnin mín þurfa að ganga í gegnum að foreldrar þeirra skilji“. Eins er algengt að fólk sjái neikvæða mynd af því hlutverki sem það er í; „fráskilin, einstæð móðir eða helgarpabbi“, svo eitthvað sé nefnt.
Það er hollt að endurskoða hugmyndir sínar um frístundir og hvað við gerum okkur til skemmtunar. Margir verða hálfgerðir unglingar fyrst eftir skilnað, fara að stunda skemmtanalífið af miklum krafti til að fylla upp í einmanaleikann. Það verður aftur á móti oftast til þess að auka á tómleikann og vanmáttinn. Það er mikilvægt að finna nýjar leiðir til að mynda tengsl, leiðir til að takast á við nýjar aðstæður.
Það er börnunum afar mikilvægt að friður ríki milli foreldranna. Ekkert vekur hjá þeim eins mikinn sársauka við skilnað eins og þegar þau upplifa togstreitu milli foreldra sinna, eða ef þau halda að foreldri sé að hafna þeim. Ekkert vekur þeim eins mikla sorg eins og það að þurfa að velja milli foreldra sinna.
Að harma og syrgja það sem maður hefur misst er ekki veikleikamerki, heldur eðlilegur þáttur þess að vera manneskja. En að ala á sorginni og vonbrigðunum getur svipt okkur þeirri gleði að geta orðið þeir einstaklingar sem við erum sköpuð til að vera. Okkur eru öllum gefnir fjöldi eiginleika. Það er ekki sjálfsagt að þeir fái að blómstra eða þroskast. Það er á okkar ábyrgð að reyna allt sem við getum til þess að svo megi verða.
Á þessu námskeiði verður þeirri nýjung bætt við að fara yfir hvað gerist í fjármálunum við skilnað. Hvernig breytist fjárhagsleg staða einstaklinga við skilnað? Hvernig er best að haga málunum og hvernig getur maður skipulagt fjármálin í takt við nýju aðstæðurnar?“
Á námskeiðinu „Er líf eftir skilnað“ er unnið með þessi og fleiri atriði sem fylgja skilnaðarferlinu.