Tumblr myndasíða spyr hvort það séu fleiri fiskar eftir í sjónum þar sem þeir virðast allir vera komnir á Tinder. Stjórnandi síðunnar tók saman nokkrar myndir af Tinder þar sem karlmenn sjást halda á fiskum. Stjórnandinn setti „emoji“-kalla yfir andlit þeirra sem gera myndirnar skemmtilegar.
Margir karlmenn á Tinder reyna að heilla aðra Tinder-notendur með því að setja mynd af sér að veiða stóran fisk. Að veiða stóran fisk getur verið karlmennskutákn. Það er bara spurning hvort þessar myndir séu að virka.
Á Tumblr-síðunni má sjá fleiri myndir.