„Ég er 22 ára gömul hrein mey. Þegar ég er með strákum kemst ég í stuð í svona tvær til þrjár mínútur og svo dett ég allt í einu úr öllu stuði. Mig langar þó reglulega að prufa kynlíf, er eitthvað sem ég get gert til að auka kynhvöt mína?“ segir ung kona sem leitaði ráða hjá kynlífs- og sambandsráðgjafa The Guardian sem átti að sjálfsögðu ekki í vandræðum með að leiðbeina henni.
„Þú hefur þegar komist að leyndarmáli sem margar konur, á öllum aldri, búa yfir. Það er að þegar kemur að kynlífi eru samfarir í minnstu uppáhaldi hjá þeim. Það er fullkomlega eðlilegt að þú sért forvitin og þig langi að missa meydóminn. Hættu þó að reyna að neyða þig til að stunda kynlíf. Undirmeðvitundin er að segja þér að þú sért ekki tilbúin.“
„Bíddu þar til þú finnur einhvern sem þú treystir fullkomlega og getur leyft þér að kanna kynferði þitt með. Ekki einungis með samförum. Það eru svo dásamlega margar leiðir færar til að tengjast einhverjum kynferðislega. Njóta þess að gera tilraunir með hluti sem höfða til þín. Ég mæli þó með því að þú frestir því að hafa samfarir þar til þú ert algerlega tilbúin.“