„Ég ferðast mikið vegna vinnu minnar, stundum viku eða lengur í senn. Ég ætla ekki að sleppa því að fá einhverja losun meðan á ferðalögunum stendur, svo ég fróa mér,“ segir Greg I í samtali við Women‘s Health, en vefurinn fékk nokkra karlmenn til að greina frá því hvers vegna þeir stunda sjálfsfróun.
„Ég geri það reyndar þegar ég er heima líka vegna þess að ég held að það sé gott fyrir mig að fá þessa útrás. Ég og konan mín höfum verið saman í átta ár, og þar af gift í fimm. Við erum ekki að fara að stunda kynlíf á hverjum degi, en ég vil þó fá það daglega, eða annan hvern dag.