Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvort einhver hafi áhuga á manni. Í staðinn fyrir að komast að því með flóknum leiðum er einfaldlega hægt að tala við manneskjuna og sjá hvort henni finnist þú fyndin, eða það segja sálfræðingar að minnsta kosti.
Samkvæmt Woman's Health var rannsókn birt í Personality and Social Psychology Bulletin-blaðinu og kemur í ljós að ef fólk brosir ekki einu sinni til manneskjunnar þá laðast það ekki að henni.
„Bæði kynin eru líkleg til þess að taka fyrsta skrefið með húmor og svara á jákvæðan hátt og finnast hin manneskjan fyndin ef þau eru hrifin af manneskjunni,“ sögðu rannsakendur. Samkvæmt þessu ætti fólk að vera nokkuð fljótt að átta sig á hvort hrifning sé til staðar.