Maður sem er óviss um hvað hann vilji út úr lífinu leitaði hjálpar sérfræðinga Men's Fitness. „Kærastan mín er frábær í rúminu og yndisleg, skemmtileg manneskja – en ég get ekki séð mig giftast henni. Á ég að hætta með henni?“ spurði maðurinn.
„Af spurningunni að dæma lítur það út fyrir að þið kallið hvort annað kærustu og kærasta, það gæti verið um óræddar væntingar að ræða um að taka næsta skref – sérstaklega ef hún er skýr með það að hún vilji framtíð með þér. Ef svo er þá þurfið þið að tala saman. En ef þú ert að njóta sambandsins núna, held ég að þú þurfir ekki að enda það. Það eru ekki allar konur sem vilja hjónaband – sumar vilja líka bara góðan bólfélaga.“ Sagði sálfræðingurinn og kynlífssérfræðingurinn Moushumi Ghose.
Maðurinn fékk líka ráð hjá sálfræðingnum Tammy Nelson. „Ertu 25 eða 35 ára. Ef þú ert 20 og eitthvað og ekki fyrir það að gerast alvarlegur og þið eruð búin að vera saman í stuttan tíma, slappaðu þá af og njóttu þess. En ef þú ert þrjátíu og eitthvað og ert búinn að vera með henni í langan tíma, skaltu skoða líkurnar á hjónabandi og láttu hana vita hvert þú stefnir,“ sagði Nelson en bætir því við að ef hann ákveði að festa ráð sitt með henni gæti hann uppgötvað að hún væri sú eina rétta.