Kona sem var ekki nógu ánægð með hvernig kærastinn vildi haga kynlífi þeirra leitaði til ráðgjafa Elle.
Kæra E. Jean. Kærastinn minn einskorðar kynlífið við svefnherbergið og bara á nóttinni. Ég er pirruð! Mig langar að kanna fleiri staði og stellingar. Ætti ég að hundsa „komdu í heimsókn“ SMS-in frá honum?
Ráðgjafinn kom sér strax að aðalatriðum málsins þegar hún svaraði konunni. Þú ert að svara kynlífsköllum frá manni sem er hræddur við að tjá ást sína á þér í dagsljósi. Losaðu þig við hann. Bíddu aðeins, láttu mig fá heimilisfangið hans. Þegar stjörnurnar birtast ætla ég að keyra fram hjá húsinu hans og bera rassinn.