Leiðarvísir að unaðslegu bílakynlífi

Það getur verið vandasamt að stunda kynlíf í bíl.
Það getur verið vandasamt að stunda kynlíf í bíl. mbl.is/Thinkstockphotos

Greg Caye komst í heimsmetabók Guinnes fyrir að lengstan akstur í einu landi. En hann keyrði um Bandaríkin í 122 daga á Subaru-jepplingi. Kærasta Caye var með í för og þar sem þau gistu líka í bílnum stunduðu þau einnig kynlíf í bílnum. Caye skrifaði pistil á Elle þar sem hann fer yfir góð bílakynlífsráð. 

Finnið góða kyn­lífs­stöðu sem er góð fyr­ir báða aðila og hent­ar í bíl

Staðan sem Caye og kærasta hans stunduðu oft kynlíf í var blindi bílstjórinn, en Caye fann sjálfur upp nafnið. Hér situr annar aðilinn í bílstjórasætinu og hinn aðilinn situr í kjöltunni og snýr fram eins og í öfugu kúrekastelpunni. Sá aðili sem er ofan á getur notað stýrið til þess að lyfta sér upp og niður og vagga mjöðmunum til hliðar. Sá sem situr getur einnig nýtt sér stýrið og þrýst sér betur að hinum aðilanum. 

Í öðrum stöðum þar sem er legið er á baki eða maga mælir hann með að hlutir í bílnum séu notaðir til þess að þrýsta sér að hinni manneskjunni. Hægt er að halda í hurðina, bílþakið eða glugga. Fyrir þá sem eiga pallbíl er tilvalið að bregða sér upp á pallinn og stunda kynlíf þar. 

Kynlífsgardínur

Það getur komið sér vel að vera með gardínur. Hægt er að nota efnisbúta með frönskum rennilás sem auðvelt er að festa fyrir ofan gluggana þegar leikar hefjast. Þetta er þó ekki nauðsynlegt en Caye mælir með þessu enda vildi hann ekki eiga hættu á að vera handtekinn. 

Nýttu umhverfið

Ef keyrt er um þjóðveginn er tilvalið að keyra aðeins afsíðis, bak við hól eða eitthvað annað í náttúrunni áður en gamanið byrjar. 

Fjárfestu í þægindum

Bílar eru litlir og það getur verið erfitt að koma sér þægilega fyrir liggjandi fram í og ekki er það skárra aftur í. Þá getur verið sniðugt að fjárfesta í góðum teppum og tveimur púðum sem nota má til þess að koma í veg fyrir óþægindi. Maður vill ekki eyða tíu mínútum í að leita að einhverju í bílnum sem getur gert bílinn aðeins þægilegri. 

Vertu í réttu fötunum 

Caye segir venjulegar buxur, gallabuxur, samfestingar og leggings henta illa þegar leikar æsast og plássið er lítið. Hann mælir með teygjanlegu stuttu pilsi og þægilegum sokkum eða víðum stuttbuxum. Í þessum fötum er auðvelt að stunda kynlíf og ganga síðan beint inn á næstu bensínstöð án þess að þurfa skipta um föt. 

Frágangur

Hann mælir með að fólk sé með blautþurrkur til þess að þrífa eftir sig og ruslapoka. 

Mikilvægt er að koma sér vel fyrir.
Mikilvægt er að koma sér vel fyrir. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál