Kona sem er ekki nógu ánægð með frammistöðu kærasta síns í rúminu leitað til E. Jean ráðgjafa Elle.
Hæ, E. Jean. Ég er 33 og hef farið á stefnumót með hálfri New York-borg og ég orðin þreytt á því. Loksins hitti ég einhvern sem ég kann mjög vel við. Hann er gáfaður, fyndinn, sætur náungi. Hann er ástríðufullur í rúminu en mjög mjúkur. Ég hinsvegar er meira fyrir afbrigðilega hluti og ég veit ekki hvort ég get haldið áhuga á manni sem hefur aldrei prófað það sem ég tel vera eðlilegan hlut í nútímakynlífi.
Gerðu það, ekki segja mér að ég þurfi að kynna hann fyrir nýjum stellingum eða koma með kynlífsleikföng í kynlífið. Hann er að nálgast fertugt og ætti að kunna þetta, er það ekki? Ætti ég að sparka honum af því að hann hugsar ekki nógu dónalega.
Í staðinn fyrir að konan losi sig við hann mælir E. Jean frekar með því að konan undirbúi hann.
Kappinn er ekki hugsanalesari. Segðu honum hvað þér finnst gott. Troddu í hann fróðleik! Með smáatriðum! Yfir kvöldmat! Ef gæinn er í engu ástandi til þess að standa upp eftir eftirréttinn þá ertu búin að vinna vinnuna þína.