Svaf hjá tvíburabróður kærastans

Konan svaf ekki bara hjá bræðrum heldur tvíburabræðrum.
Konan svaf ekki bara hjá bræðrum heldur tvíburabræðrum. mbl.is/Thinkstocphotos

Kona sem hefur stundað kynlíf með tvíburabræðrum leitaði ráð hjá Deidre, ráðgjafa The Sun

Kæra Deidre, ég hef verið að stunda kynlíf með tvíburabræðrum og hvorugur veit af því. Þeir eru 22 ára og þó svo að þeir líti alveg eins út eru þeir með mjög ólíkan persónuleika, með mjög mismunandi smekk. 

Ég hitti annan þeirra í hlaupaklúbbnum mínum. Ég er tvítug og vinn sem gæslumaður í tómstundamiðstöð en af því ég sit allan daginn hleyp ég í frítíma mínum. Þessi strákur var alltaf vinalegur og bauð mér far heim eitt kvöldið þegar það var grenjandi rigning. Við töluðum saman heillengi í bílnum. Hann bauð mér í drykk helgina eftir og við áttum frábært kvöld. Við fórum heim til mín og stunduðum kynlíf.

Hann var góður elskhugi. Hann vissi hvernig líkami konu virkar og hvernig ætti að láta mér líða vel. Við byrjuðum að hittast eftir það. Tveimur vikum eftir að samband okkar hófst mætti hann í vinnuna til mín. Eða ég hélt að þetta væri hann. Svo áttaði ég mig á því að þetta var tvíburabróðir hans, hann hafði sagt mér að hann væri tvíburi og þessi strákur var með aðeins meira hár. 

Þegar hann kom upp úr lauginni var ég að fara í kaffi og ég ætlaði að kynna mig þegar hann spurði mig hvar kaffihúsið væri. „Ég er að fara þangað sjálf. Ég bíð eftir þér við stigann og sýni þér,“ sagði ég. 

Við settumst niður og hann virtist blíðari en kærasti minn, ekki jafnsjálfselskur og var með æðislegt bros. Við töluðum saman yfir kaffibolla en ég þorði ekki að segja að ég væri að hitta bróður hans. Hann bað um nafnið mitt og fann mig á Facebook og við byrjuðum að tala saman. 

Hann bað mig um að hitta sig næsta kvöld eftir vinnu og bauð mér út að borða. Hann minntist á bróður sinn og hélt að hann væri að hitta einhverja en hafði annars ekki mikið með hann að gera. Ég var skræfa og of hrifin af honum til þess að segja eitthvað svo bauð ég honum heim til mín og við enduðum upp í rúmi. Hann var ekki reynslumikill elskhugi en var spenntur fyrir því að ég sýndi honum hvað mér þætti gott. Ég hef tilfinningar gagnvart honum en ég veit að ég verð ekki laus fyrr en ég finn út úr þessu. 

Deidre segir þetta vera mikil vandræði og sambandið sem komi verst út úr þessu sé á milli tvíburabræðranna. 

Kannski virðast þeir ekki svo nánir akkúrat núna en það er sérstök tenging á milli þeirra og ábyrgðarlaust að hætta á að eyðileggja það. Róaðu sambandið við annan þeirra svo þú lendir ekki í miðjunni á fjölskyldurifrildi. Sá blíðari hljómar betri fyrir mér en þú verður að velja. 

Ef þeir eru ekki í miklu sambandi gætir þú komist upp með þetta en ef þú ákveður að vera með öðrum þeirra verður þú að lokum að játa að þú hafir farið á nokkur stefnumót með bróður hans. Ef þið eruð þá orðin náin er það kannski ekki svo mikið stórmál. 

Annar er betri í bólinu en hinn er blíðari.
Annar er betri í bólinu en hinn er blíðari. mbl.is/Thinkstocphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál