Þegar einn annasamasti tími ársins er á næsta leiti hættir okkur til að gleyma gleðinni í amstri dagsins. Auk daglegra verka eru flest okkar í óðaönn að skipuleggja hátíðina, skreyta húsið að utan og innan, undirbúa að pakkarnir verði á sínum stað undir trénu og maturinn á sínum stað á borðum fyrir jólin.
Á þessum tíma þegar hrukkan á milli augabrúna okkar hefur án efa aldrei verið dýpri er gott að minna sig á mikilvægi þess að brosa. Við vitum að hláturinn lengir lífið. Svo af hverju erum við ekki stöðugt að hlæja?
Vísindin á bak við brosið segja okkur að bros hefur áhrif á streitu, við förum í betra skap við það að brosa. Bros og hlátur draga úr streitu og eru einnig verkjastillandi. Það eykur einbeitingu að brosa og eflir árangur og afköst. Bros er sagt hafa yngjandi áhrif og er því ókeypis andlitslyfting. Sumir verða meira aðlaðandi þegar þeir brosa en best af öllu þá kostar brosið okkur ekkert.
Svo ef þú ert aðeins á eftir áætlun þessa hátíðina þá getur þú verið viss um að ef þú klæðir þig í klassíska gamla jóladressið og setur upp brosið muntu skarta þínu fegursta og þar sem bros er smitandi, gleðja sjálfan þig og aðra yfir hátíðina.