Pippa skrúfar upp kynþokkann

Pippa Middleton er smart í ermalausri skyrtu.
Pippa Middleton er smart í ermalausri skyrtu. mbl.is/US

Ofurskutlan Pippa Middleton er komin heim frá Madrid þar sem hún eyddi nokkrum dögum með gamla sénsinum, George Percy. Það náðust myndir af henni þegar hún gekk um götur Lundúna og var alþýðleg í klæðaburði.

Hún klæddist ljósbláum niðurmjóum gallabuxum við ljósbláa ermalausa skyrtu. Við fötin var hún með stór sólgleraugu og ljósbleika tösku. Þessa dagana er það mikið í tísku að vera í samlitum fötum, að klæðast bláu við blátt og þar frameftir götunum. Hún keyrir á kynþokkanum með því að klæðast ermalausu, það er svo óendanlega þokkafullt!

Nú er bara spurningin hvort samband hennar við George Percy sé eitthvað að þróast meira eða hvort hún láti hér við sitja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál