Paris Hilton miður sín vegna kynlífsmyndbandsins

Kathy Hilton og dóttir hennar, Paris Hilton.
Kathy Hilton og dóttir hennar, Paris Hilton. mbl.is/CNN

Hollywood-skvísan og hótelerfinginn Paris Hilton mætti í viðtal til Piers Morgan, sem sýnt verður næsta mánudag, á CNN sjónvarpsstöðinni. Með í för var móðir hennar, Kathy Hilton, og felldu þær báðar tár í settinu hjá Piers þegar kynlífsmyndbandið fræga barst í tal.

Forsaga málsins er sú að fyrir allmörgum árum lak kynlífsmyndband af Paris Hilton og þáverandi kærasta hennar á netið. Hún sagði í viðtalinu við Piers að kynlífsmyndbandið hafi gert hana heimsfræga en á sama tíma sé þetta mest niðurlægjandi reynsla sem hún hafi lent í.

Paris Hilton finnst ömurlegt að hafa verið stimpluð sem einhver drusla eftir að kynlífsmyndbandið lak á netið.

Hún segir að líf hennar hafi breyst eftir að kynlífsmyndbandið birtist og hún vildi óska þess að það væri hægt að spóla til baka.

Móðir Parisar sagði að mánuðirnir eftir að myndbandið birtist hefðu verið hræðilegir og dóttir hennar hafi ekki farið út úr húsi í þrjá mánuði.

Það sem svíður mest er að þetta var ekki einhver strákur sem hún svaf hjá einu sinni heldur kærasti hennar til nokkurra ára. Það getur Paris seint fyrirgefið.

mbl.is/CNN
Paris Hilton.
Paris Hilton. mbl.is/CNN
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál