Harry prins genginn út!

Hér má sjá myndir af Florence auglýsa nýjustu baðfatalínu John …
Hér má sjá myndir af Florence auglýsa nýjustu baðfatalínu John Lewis. mbl.is/John Lewis

Það er skammt stórra högga á milli. Það var einungis í síðustu viku að Harry var bendlaður við svilkonu sína, Pippu Middleton, en það lítur út fyrir að hann hafi verið með hugann við allt aðra stúlku.

Í gær var því ljóstrað upp að hann væri kominn með nýja kærustu og þau hefðu verið að hittast á laun undanfarnar vikur. Hin heppna heitir Florence Brundenell-Bruce og er 25 ára gömul fyrirsæta.

Harry var áður í sjö ára stormasömu sambandi við Chelsy Davy og þrátt fyrir að hún hafi mætt við hlið hans í konunglega brúðkaupið í apríl þá hættu þau saman nokkru síðar.

Florence er af aðalsfólki komin og þess má geta að hún og Harry eru skyld í áttunda ættlið. Florence býr í íbúð í Notting Hill hverfinu sem kostar rúmar 70 milljónir króna og er því ekki á flæðiskeri stödd.  

Harry Bretaprins.
Harry Bretaprins. mbl.is/Reuter
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál