Ekkert breyst þótt hún hafi grennst

Jennifer Hudson hefur grennst um rúm þrjátíu kíló á þremur …
Jennifer Hudson hefur grennst um rúm þrjátíu kíló á þremur árum. mbl.is/Cover

Þyngdartap söng- og leikkonunnar Jennifer Hudson hefur vakið gríðarlega athygli enda hefur hún rýrnað um tugi kílóa. Í nýlegu viðtali við Us Weekly segir unnusti hennar, David Otunga að hann sé mjög stoltur af árangrinum og ánægður með nýja útlitið.

„Ég gríðarlega stoltur af henni eins og sjálfsagt flestir. En það sem ég er ánægðastur með er að hún hefur að öðru leyti ekkert breyst. Hún hefur alltaf verið full sjálfstrausts og það hefur ekkert breyst.“

Hann segir þau dugleg að æfa saman en hann er glímukappi.

„Ég var vanur að æfa glímubrögðin mín á henni og trúið mér - hún er bara nokkuð góð.“

Jennifer Hudson.
Jennifer Hudson. mbl.is/AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál