Kom að eiginkonunni í bólinu með öðrum

Will Smith.
Will Smith. AP

Það er allt að verða vitlaust í Bandaríkjunum út af fregnum af yfirvofandi skilnaði Will Smith og eiginkonu hans til þrettán ára, Jödu Pinkett-Smith. Tímaritið In Touch stendur fast við fréttaflutning sinn af skilnaðinum þrátt fyrir að Smith-hjónin hafi staðfastlega neitað að hann eigi við nokkur rök að styðjast.

Nú er blaðið hins vegar komið út og í því er sex blaðsíðna umfjöllun um skilnaðinn og orsök hans. Samkvæmt heimildum blaðsins á Will Smith að hafa komið að eiginkonunni uppi í rúmi með Marc Anthony, fyrrum eiginmanni Jennifer Lopez.

Blaðið heldur því jafnframt fram að Smith hafi hlaupið grátandi út úr húsinu og daginn eftir hafi Jada flutt út. Í ofanálag rak hann megnið af starfsfólki þeirra fyrir að hylma yfir með frúnni.

Nú er að sjá hvað Smith-hjónin segja. Hvort orðróminum verði áfram neitað eða hvort að satt reynist.

Will Smith, Jada Pinkett Smith ásamt börnum sínum, Jaden, Willow …
Will Smith, Jada Pinkett Smith ásamt börnum sínum, Jaden, Willow og Willard Christopher III Reuters
Will Smith og Jada Pinkett-Smith.
Will Smith og Jada Pinkett-Smith. mbl.isl/COVER
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál