Flestar viljum við hafa snyrtilegar og fínar neglur en sumar eru tilbúnar að ganga skrefinu lengra fyrir hina fullkomnu handsnyrtingu. Söngkonan Rihanna treystir ekki hverjum sem er fyrir nöglunum á sér og er því tilbúin að eyða himinháum fjárhæðum í rétta naglasérfræðinginn.
Þar sem Rihanna er stödd á snekkju í miðjarðarhafinu þessa stundina neyddist hún til að grípa til sinni ráða og biðja naglasérfræðinginn Jenny Longworth um að fljúga til sín í snatri til að snyrta á sér neglurnar. Að sjálfsögðu greiddi Rihanna flugið fyrir Longworth og annan kostnað sem fylgdi ferðalaginu. Til viðbótar fékk þá Longworth dágóða summu fyrir vinnuna þannig að heildaupphæðin var 6000 pund eða um rúm milljón.
„Rihanna er smámunasöm og treystir ekki hverjum sem er. Hún hefur þekkt Jenny lengi og elskar vinnubrögð hennar,“ sagði heimildamaður Daily Mirror.