Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian á sand af seðlum og hún er ekkert að fela það. Khloe birti í gær ljósmynd á Instagram af grænni Birkin-leðurtösku frá Hermès en slík taska kostar um 1,3 milljónir króna. Það væri kannski ekki frásögur færandi nema fyrir það að Khloe lét götulistamann sem kallar sig Alec Monoploly mála á töskuna.
Alec málaði Rich Uncle Pennybags á töskuna en það er karakterinn sem margir kannast við úr Monolopoly-spilinu.
Khloe fékk misjöfn viðbrögð við myndbirtingunni. „Ríkt fólk kann ekki að haga sér,“ sagði einn fylgjandinn. „En sú sóun á 10.000 dollurum eða meira,“ sagði annar.