Fjórða sería af House of Cards er í undirbúningi sem vekur væntanlega mikla kátínu hjá aðdáendum þáttanna. Það sem er merkilegt að um helgina verða opnar prufur fyrir sjónvarpsþættina þar sem almenningi gefst kostur á að spreyta sig á leiksviðinu. Prufurnar fara fram 30. maí í Annapolis. Annapolis er einn fallegasti strandbær austurstrandar Bandaríkjanna, staðsettur í Maryland, og í tæplega klukkutíma fjarlægð frá Washington og Baltimore.
Undirrituð var einmitt stödd í þessum bæ á dögunum og naut þess í botn að labba um miðbæinn. Að labba um bæinn vakti upp minningar frá Au Pair árinu í Bandaríkjunum. Í miðbænum er hægt að kaupa ógrynni af snekkjufötum, kjólum með akkerum, röndótta boli, sjóliðahatta og opna skó sem passa vel í bátsferðir. Þar eru líka dásamlegir sjávarréttaveitingastaðir, barir og kaffihús. Á morgunverðarstað einum var meira að segja farið með morgunbænina yfir beikoninu og eggjunum og beðið fyrir Ameríku. Það veitti kannski ekki af því að gera þetta víðar í heiminum en það er önnur saga.
Laugardaginn 30. maí verða opnar prufur eða „casting“ fyrir þessa vinsælu sjónvarpsþætti. Prufurnar fara fram á Pip Moyer Recreation Center, 273 Hilltop Lane, Annapolis.
HÉR er hægt að fá nánari upplýsingar um prufurnar.