Frosti Gnarr hönnuður og listamaður á von á sínu fyrsta barni með unnustu sinni Erlu Hlín Hilmarsdóttur, sem er verslunarstjóri Aftur. Frosti vinnur á Íslensku auglýsingastofunni og eins og eftirnafnið gefur til kynna er hann sonur Jóns Gnarrs eða réttara sagt stjúpsonur.
Von er á erfingjanum á jóladag og er mikill spenningur í loftinu. Við hér á Smartlandi Mörtu Maríu óskum þeim hjartanlega til hamingju með óléttuna.