Leikkonan Amber Heard klæddist glæsilegum kjól úr smiðju Emilio Pucci á frumsýningu Magic Mike XXL í London fyrr í vikunni. Kjóllinn sem Heard klæddist er eldrauður og opinn í bakið og hliðarnar.
Bresku fréttamiðlarnir hafa nú ákaft vakið athygli á „sideboob-inu“ sem leikkonan skartaði á rauða dreglinum. „Hin 29 ára Heard valdi glæsilegan ermalausan kjól sem ýtti undir íþróttamannslegan vöxt hennar ásamt því að afhjúpa nóg af sideboob,“ segir í frétt Daily Mail.
Heard var þó ekki eina sem vakti athygli á frumsýningunni. Leikkonan Jada Pinkett Smith skein skært í sínum stutta svarta kjól frá Balmain.