Leikkonan Elizabeth Olsen átti smá Marilyn Monroe-augnablik í París á laugardaginn þegar vindkviða varð til þess að pils hennar fauk upp. Húðlitaðar nærbuxur hennar blöstu þá við ljósmyndurum og öðrum viðstöddum. Atvikið átti sér stað á viðburði sem tískuhús Miu Miu hélt.
Olsen var fljót að redda sér og skellti upp úr og hélt pilsinu niðri með handtöskunni sem hún skartaði.
Atvikið minnti óneitanalega á það þegar karakter Marilyn Monroe lenti í þessu í kvikmyndinni The Seven Year Itch sem kom út árið 1955.