Kim Kardashian er orðin vinsælasta manneskjan á Instagram með 44,1 milljónir fylgjenda. Titlinum hampað hún af Beyonce Knowles sem er með 44 milljónir fylgjenda. Samkvæmt The Daily Mail hefur Kardashian öðlast tvær milljónir fylgjenda á aðeins fjórtán dögum.
Í síðustu viku fagnaði Kardashian því að vera með 42 milljónir fylgjenda á síðunni. Hún er þekkt fyrir að deila „selfie“ myndum af sjálfri sér á síðunni og gaf út bókina „Selfish“ fyrr á árinu.
Þriðji vinsælasti notandi Instagram er svo Taylor Swift en hún er með um 43,5 milljónir fylgjenda. Kardashian systurnar eru afar áberandi á miðlinum en þær Kendall, Kylie, og Khloe eru allar á meðal topp tíu vinsælustu notenda Instagram.
Til gamans má geta að ef Instagram-aðgangur Kardashian væri land væri það í 32. öðru sæti yfir fjölmennustu lönd í heimi. Aðeins einn aðgangur er vinsælli en aðgangur Kardashian og Knowles til samans á miðlinum en það er aðgangur Instagram-miðilsins sjálfs með 94,3 milljónir fylgjenda.
Tíu vinsælustu notendur Instagram
1. Kim Kardashian — 44,100,000 fylgjendur.
2. Beyoncé — 44,000,000 fylgjendur.
3. Taylor Swift — 43,533,226 fylgjendur.
4. Selena Gomez — 41,843,095 fylgjendur.
5. Ariana Grande — 41,696,873 fylgjendur.
6. Justin Bieber — 36,994,254 fylgjendur.
7. Kendall Jenner — 35,388,483 fylgjendur.
8. Kylie Jenner — 33,703,166 fylgjendur.
9. Nicki Minaj — 32,278,123 fylgjendur.
10. Khloé Kardashian — 30,522,261 fylgjendur.