Stjörnuleikarinn og hjartaknúsarinn George Clooney gekk að eiga sína heittelskuðu, mannréttindalögfræðinginn Amal Clooney árið 2014. Bæði eru þau afar upptekin, en reyna þó eftir fremsta megni að eyða sem mestum tíma saman
„Við notum Face Time“ sagði leikarinn í viðtali fyrir frumsýningu kvikmyndarinnar Hail Caesar á dögunum aðspurður að því hvernig þau færu að þegar annað þeirra þyrfti að ferðast.
Leikarinn játaði að þetta væri púsluspil, en sagði að þau væru ansi lunkin við að finna lausnir á vandanum.
„Við eyðum miklum tíma saman og reynum að láta ekki líða langt á milli. Við náum að skipuleggja okkur furðuvel á milli verkefna hjá okkur.
Undanfarið hefur Amal verið gestakennari við lagadeild Columbia háskólans, sem gerir henni kleyft að dvelja í Bandaríkjunum. Hjónin eiga þó hús á Englandi.
Frétt Stylist.