Sjáðu senuna sem klippt var út

Anna Svava Knútsdóttir er hress á Snapchatti dagsins.
Anna Svava Knútsdóttir er hress á Snapchatti dagsins. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Leikararnir í Ligeglad, þau Anna Svava Knútsdóttir, Helgi Björnsson og Vignir Rafn Valþórsson eru með Nova snappið í dag og eru búin að vera í góðum gír það sem af er degi. Ligeglad þættirnir hafa vakið mikla athygli er þeir voru teknir til sýninga á RÚV enda leikararnir í hressara lagi. Þættirnir eru þó alls ekki lausir við að vera umdeildir því ýmist elskar fólk þá eða hatar.

Efni þáttanna getur verið á gráu svæði og það er ekkert verið að skafa utan af hlutunum. Á snappi sem að sett var inn fyrr í dag sést hvernig þau Anna Svava og Vignir eiga í samræðum við klippara þáttanna sem segja þeim að sena sem þau voru mjög spennt fyrir hafi verið klippt út. Undirtektir leikaranna voru heldur dræmar.

Þið getið séð senuna á Novaisland á Snapchat - það er þess virði!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál