Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans Dorrit Moussaieff, kíktu á Íslandsmeistaramótið í sundi um helgina sem fram fór í Laugardalslauginni. Leiddust þau hönd í hönd og ástin skein af þeim.
Dorrit og Ólafur heitbundust hvort öðru árið 2000 en þremur árum síðar gengu þau í hjónaband. Þau giftu sig á afmælisdegi Ólafs þann 14. maí 2003.
Hjónin hafa lítið sést saman opinberlega og hafa blaðamenn tekið eftir því að Ólafur er yfirleitt einn á ferð. Dorrit var þó með í for þegar Francois Hollande forseti Frakklands kom til landsins í október í fyrra. Þar voru þau saman kát og glöð.
Ljóst er að ástin er enn við völd á Bessastöðum ef marka má myndir af sundmótinu í gær.