Söngfuglinn Adele hefur heldur betur verið að gera góða hluti undanfarið, en á dögunum skrifaði hún undir risasamning við Sony.
Eins og sjá má er Adele ekki á flæðiskeri stödd, en hún festi á dögunum kaup á stærðarinnar glæsihýsi. Slotið, sem er ekki af verri endanum, kostaði 9,5 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 1,2 milljarða íslenskra króna.
Það ætti ekki að væsa um litlu fjölskylduna, en í húsinu er að finna fjögur svefnherbergi, sex baðherbergi og að sjálfsögðu er sundlaug í garðinum. Nágrannar söngkonunnar eru svo ekki af verri endanum, en Jennifer Lawrence, Cameron Diaz auk þess sem hjónakornin Mila Kunis og Ashton Kutcher búa í nágrenninu.
Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail