Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er þekkt fyrir föngulegt útlit, enda fyrirmynd margra kvenna í þeim efnum. Það stöðvar hana þó ekki í því að bera sig saman við aðrar glæsilegar konur, líkt og vinkonu hennar Chrissy Teigen.
Kardashian er tveggja barna móðir, en sonur hennar kom í heiminn fyrir hálfu ári. Síðan þá hefur hún lagt hart að sér að komast aftur í form, en hún þyngdist um 27 kíló á meðgöngunni.
„Ég sé vinkonur mínar, líkt og Chrissy sem ég elska afar heitt, og segi Chrissy mig langar að drepa þig. Hvernig ferðu að þessu?“ sagði Kardashian í samtali við People.
Teigen átti sitt fyrsta barn í apríl, og var ekki lengi að koma sér í form en hún var farin að spóka sig um í stuttbuxum viku síðar.
„Hún er fyrirsæta. Þetta er mun einfaldara fyrir hávaxnar og grannar fyrirsætur,“ gantaðist Kardashian með.