Strákarnir okkar eiga góða hvíld skilið eftir glæsilegt gengi í Evrópukeppninni í knattspyrnu. Ekki væsir um miðjumanninn Gylfa Sigurðsson sem nýtur lífsins þessa dagana á snekkju í Miami ásamt kærustu sinni, Alexöndru Helgu Ívarsdóttur.
Gylfi birti þessa mynd á Facebook-læksíðu sinni en á myndinni má sjá að þó svo að fótboltakappinn sé í fríi er hann í afar góðu formi. Þau Gylfi og Alexandra þykja með glæsilegustu pörum landsins en hún var kjörin Ungfrú Ísland árið 2008.