Strákarnir í íslenska landsliðinu skutust upp á stjörnuhimininn á EM og vinsældir þeirra á Instagram hafa aukist samhliða því. Vinsælastur er Gylfi Sigurðsson (@gylfisig23) sem einnig hefur átt góðu gengi að fagna í ensku úrvalsdeildinni. Hann er með rúma 74 þúsund fylgjendur.
Birkir Bjarnason (@birkirbjarnason) vakti mikla lukku fyrir víkingslegt útlit og elju á vellinum og eru fylgjendur hans í dag um 53 þúsund. Þá er Eiður Smári (@eidurgudjohnsen) með tæplega 23 þúsund svo annað dæmi sé tekið.
Þeir hafa þó ekki náð sömu hæðum og Crossfit-konurnar okkar. Annie Mist sem sigraði Crossfit-leikana árið 2012 og varð fræg á einni nóttu í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig fangað athygli víða og birtust m.a. myndir af henni í tískuritinu Vogue. Annie Mist (@anniethorisdottir) er hvorki meira né minna en með 448 þúsund fylgjendur og fast á hæla hennar fylgir Katrín Tanja (@katrintanja), Crossfit-meistarinn 2015, með 447 þúsund fylgjendur. Báðir meistararnir veita fylgjendum sínum innsýn í þá vinnu sem fer í að vera „The fittest woman on Earth“.
Til gamans má geta að víðförulli Instagrammarar eins og hljómsveitin Sigur Rós er með 175 þúsund fylgjendur og Icelandair er með 185 þúsund fylgjendur. Svo er það Björk, hún er með 431 þúsund fylgjendur, en það má þó segja að hún hafi haft smá forskot með tíma hvað varðar að kynna sig fyrir heimsbyggðinni. Skyldu Annie Mist og Katrín Tanja vera með flesta fylgjendur af íslenskum Instagram-notendum?