Fyrirsætan Naomi Campbell vakti heldur betur lukku á rauða dreglinum á myndbandaverðlaunahátíð MTV um seinustu helgi. Campbell leit stórvel út í báðum kjólunum sem hún klæddist en hún skipti um föt á miðri hátíð eins og sannri stjörnu sæmir. Og það sem meira er, Campbell leit varla út fyrir að vera deginum eldri en 30 ára en í raun er hún 46 ára.
Fyrirsætan virðist ekki ætla að eldast eins og sjá má þegar gamlar myndir af henni eru bornar saman við nýjar. Meðfylgjandi er mynd af Campbell sem var tekin árið 1999, til hliðar er mynd sem tekin var á MTV-hátíðinni seinustu helgi. Það er ekki að sjá á henni að það séu liðin 17 ár á milli myndanna.